Mæli og Vöktunarkerfi

E-Series Mælar

Ultrasonic mælir
Lausnirnar frá Badger Meter bjóða upp á háþróaða mæla og vöktunarkerfi sem hjálpa fyrirtækjum og sveitarfélögum að ná fullri stjórn á vökvanotkun og vatnsdreifingu. Vörurnar byggja á áratuga reynslu í nákvæmri flæðimælingu og snjallri gagnasöfnun, sem gerir rekstraraðilum kleift að taka betri og upplýstari ákvarðanir.
Lausnirnar ná yfir allt vatnsferlið – frá mælingu á rennsli og þrýstingi til rauntímavöktunar á vatnsgæðum. Með snjöllum mælum og IoT-tengdum kerfum er hægt að fylgjast með notkun, greina leka snemma og draga verulega úr sóun. Þetta leiðir til aukinnar hagkvæmni, lægri rekstrarkostnaðar og betri nýtingar auðlinda .
Með því að nýta stafrænar lausnir eins og sjálfvirka mælalestur og gagnagreiningu fá notendur heildstæða mynd af kerfum sínum, sem eykur rekstraröryggi og styður við sjálfbæra nýtingu vatnsauðlinda
Sölumenn Kemíu veita svör við frekari spurningum um mæli og vöktunarkerfi frá Badger Meter.
